83 óku of hratt á Vífilsstaðavegi

mbl.is/Júlíus

Brot 50 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í austurátt, við Barnaskóla Hjallastefnunnar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 114 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Níu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 83.

Vöktun lögreglunnar á þessum hluta Vífilsstaðavegar er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.
 
 
Brot 33 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í austurátt, skammt austan við Stekkjarflöt.

Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 206 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en tíundi hluti ökumanna, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75.

Vöktun lögreglunnar á þessum hluta Vífilsstaðavegar, en í nágrenninu er Flataskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.
 
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert