Fordæmir ákvörðun Alþingis

Alþingi samþykkti að ákæra Geir H. Haarde.
Alþingi samþykkti að ákæra Geir H. Haarde. Kristinn Ingvarsson

Stjórn Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, fordæmir þá ákvörðun Alþingis að ákveða að höfða mál fyrir landsdómi gegn Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra. Markmiðið með þessari ákvörðun sé að koma pólítisku höggi á Sjálfstæðisflokkinn.

„Með þessu er fetað inn á þá hættulegu braut að gera upp sakir við pólitíska andstæðinga með ákærum og pólítísk átök færð inn í réttarsalinn.
Það hefur verið sorglegt að fylgjast með þróun þessa máls. Pukur þingnefndarinnar sem vann málið er óskiljanlegt. Tillaga nefndarinnar um að höfða mál gegn tilteknum ráðherrum var illa ígrunduð, byggði ekki á sjálfstæðri rannsókn og var sett fram án þess að viðkomandi gætu svarað þeim ávirðingum sem á þau voru borin, sem er þó grundvallaratriði í okkar réttarkerfi. “


Stjórn Varðar segir að það hafi verið ljóst frá upphafi að þetta mál snúist eingöngu um pólítík og markmiðið sé að koma pólítisku höggi á Sjálfstæðisflokkinn og beina þar með athyglinni frá getuleysi og aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar.

„Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei vikið sér undan þeirri ábyrgð sem hann ber á stjórn landsins í aðdraganda efnahagshrunsins og hefur gert upp við fortíðina með afdráttarlausum og hreinskilnum hætti á síðastliðnum tveimur landsfundum.
Það er forkastanlegt að meirihluti Alþingis skuli hafa dregið stjórnmál á Íslandi niður á þetta sorglega plan. “


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert