Alþingi sett á morgun
Lögregla stendur jafnan heiðursvörð við þingsetningu. mbl.is
Alþingi verður sett að nýju á morgun með hefðbundnum hætti og fjárlagafrumvarp fyrir árið 2011 verður síðan lagt fram klukkan 16. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, mun síðan flytja stefnuræðu sína á mánudagskvöld og síðan verða umræður um hana.
Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13.30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu kl. 13.25.
Sr. Halldóra J. Þorvarðardóttir, prófastur Suðurprófastsdæmis, predikar og séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni. Organisti Dómkirkjunnar, Kári Þormar, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.
Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.
Forseti Íslands setur Alþingi, og að því loknu flytur forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, ávarp. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 16.
Þegar þingsetningarfundi verður fram haldið kl. 16 verður hlutað um sæti þingmanna. Fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011 verður þá útbýtt.
Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða á mánudagskvöld 4. október, kl. 19.50. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, mælir síðan fyrir fjárlagafrumvarpinu þriðjudaginn 5. október og hefst umræðan kl. 13.30.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 1. október 2010, Innlent Fjölmenni á Austurvelli
- Föstudagur, 1. október 2010, Innlent Alþingi verður sett í dag
- Fimmtudagur, 1. október 2009, Innlent Ríkisráðsfundur á Bessastöðum
- Laugardagur, 1. október 2011, Innlent Girðing við Alþingishúsið
- Miðvikudagur, 23. september 2009, Innlent Alþingi verður sett í næstu viku
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































