Sjálfstæðismenn gagnrýna seinagang
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins gagnrýna harðlega hversu seint vinnu við fjárhagsáætlanagerð borgarinnar miðar. Þeir segja að úthlutun á fjárhagsramma einstakra sviða hafi fyrst verið afgreidd í borgarráði í morgun, tæpum tveimur mánuðum síðar en gert hafi verið ráð fyrir.
„Þrátt fyrir hversu langan tíma þessa vinna hefur tekið, virðist alla forgangsröðun skorta í fjárhagsáætlanagerðina og ónógt samráð, bæði innan borgarstjórnar og við starfsfólk, veldur því að erfitt er að greina nokkrar pólitískar línur í þeirri vinnu sem nú hefur loks verið vísað til fagsviðanna,“ segir í tilkynningu.
Haft er eftir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, að samkvæmt þeirri rammaúthlutun sem nú liggi fyrir sé stefnt að meiri hagræðingu á menntasviði og íþrótta- og tómstundarsviðin en af menningar- og ferðamálasviði og einnig meiri en af miðlægri stjórnsýslu.
Hanna Birna undrast slíka forgangsröðun og telur hana í ósamræmi við brýnustu verkefnin í borginni.
„Ástæðan fyrir góðum árangri í fjárhagsáætlanagerð Reykjavíkurborgar á undanförnum árum er einföld. Borgarstjórn var einróma um áherslur í þágu velferðar og barna, auk þess sem meginlínurnar um skatta, gjaldskrár og grunnþjónustu voru alveg skýrar. Forgangsröðunin var einnig öllum ljós og endurspeglaðist í því að sparnaður var mestur í miðlægri stjórnsýslu en minnstur þar sem börn, menntun og velferð voru í húfi,“ segir hún í tilkynningu.
Hanna Birna bendir jafnframt á í tilkynningu að allt frá nýr meirihluti hafi verið myndaður hafi borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hvatt til þess að á þessu brýna verkefni verði tekið af alvöru sem allra fyrst. Það hafi ekki verið gert, meirihlutinn beri stöðugt við reynsluleysi og þörfin fyrir meiri tíma, sem nú sé að líða og því miður endurspegli þau gögn sem nú liggja fyrir að þetta verði ekki fjárhagsáætlun fyrir fólkið, heldur fyrir kerfið þar sem meirihluti Besti flokkurinn og Samfylkingin útiloki hvorki hækkun útsvars- né fasteignaskatta og virðist í raun gera ráð fyrir þeim.
„Slíkar hækkanir á almenning eru algert óráð á tímum þar sem almenningur einfaldlega getur ekki tekið við meiri álögum" segir Hanna Birna og ítrekar mikilvægi þess að borgin haldi áfram að standa vörð um það sem mestu skiptir og leiti allra leiða áður en vandanum er velt yfir á fólkið í borginni.
Bókun Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík vegna rammaúthlutunar í borgarráði má sjá hér.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Sjálfstæðismenn gagnrýna seinagang/Allt gert til að,gera ekki það sem þarf ... -
Ólafur Ingi Hrólfsson Misskilningur Hönnu Birnu. -
Viggó Jörgensson Borgarstjóri lokaði sig inni með bangsan sinn. -
Geir Ágústsson Reykjavík: Skatta á að hækka, skuldir eru að aukast
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 1. nóvember 2011, Innlent Segja skattahækkanir hafa verið óþarfar
- Þriðjudagur, 15. nóvember 2011, Innlent Meirihlutann skortir sýn og stefnu
- Þriðjudagur, 16. nóvember 2010, Innlent Vilja endurtaka atkvæðagreiðslu íbúa
- Mánudagur, 8. ágúst 2011, Innlent Óskað álits umboðsmanns
- Sunnudagur, 20. mars 2011, Innlent Hafnaði boði um að segja af sér
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































