2 ár á leiðinni frá Færeyjum

Skeytið barst frá Viðoy til Steingrímsfjarðar á tæpum tveimur árum.
Skeytið barst frá Viðoy til Steingrímsfjarðar á tæpum tveimur árum. mynd/bb.is

Þau Björk Guðjónsdóttir og Jón Hallur Jóhannsson fundu í júlí í sumar flöskuskeyti í fjörunni í Naustavík í landi Heydalsár við Steingrímsfjörð, þegar þau voru þar við rannsóknir á fuglum. Hafði flöskunni verið kastað í sjóinn í Færeyjum í september 2008.

Fram kemur á vefnum Strandir.is, að skeytið var í plastflösku á sjávarkambinum nokkru ofan sjávarmáls innan um ýmis konar reka. Bréfið sem í flöskunni var reyndist skrifað af fjórum færeyskum stúlkum sem heita Barbara, Katarina, Malen og Hanna.

Flöskunni var kastað í sjóinn 12. september 2008 við bæinn Viðareiði á Viðoy nyrst í Færeyjarklasanum. Það liðu því tæp 2 ár þar til skeytið fannst, en óvíst er hve lengi það hefur legið í fjörunni.

Að sögn Stranda.is lýsa stúlkurnar í bréfinu hinum ýmsu áhugamálum sínum, m.a. að þær hafi mikinn áhuga á dýrum og sérstaklega hestum. Finnendurnir hafa verið í síma- og tölvusambandi við stúlkurnar og foreldra þeirra.

Strandir.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert