Leiksýning Jóhönnu

Mótmælin á Austurvelli aðfaranótt föstudagsins 1. október. stækka

Mótmælin á Austurvelli aðfaranótt föstudagsins 1. október. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

„Stjórnin er með upplýsingar sem hún gæti notað en það á ekki að hrinda neinu í framkvæmd. Þetta er framhald af því leikriti sem ég held að það hafi verið frá upphafi,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, um afstöðu stjórnarinnar til aðgerða í þágu skuldsettra heimila.

Stjórnvöld boðuðu fulltrúa stjórnarandstöðunnar á fund í dag til að ræða skuldavanda heimilanna og segir Þór aðspurður að fundarboðið sé hluti af leiksýningu sem sett sé á svið til að villa um fyrir kjósendum.

Gert til að vinna tíma

„Þetta var sett á svið til að tefja málið. Strax daginn eftir mótmælin 4. október var stjórnarandstaðan beðin um að koma til fundar. Ég er búinn að mæta á fimm fundi með ráðherrahópi stjórnarinnar og þar hefur hver höndin verið uppi á móti annarri hjá þessum fimm ráðherrum. Ögmundur [Jónasson dómsmálaráðherra] hefur verið sá eini sem hefur talað fyrir hagsmunum heimilanna.

Hinir hafa allir talað fyrir hagsmunum fjármagnseigenda, að það megi ekki hrófla við þeim. Það hefur ekki verið mikil samstaða um það innan ríkisstjórnarinnar hvað ætti að gera. Það voru settar á svið risastórar leiksýningar á stóra sviðinu í Þjóðmenningarhúsinu með tveggja daga millibili. Það hefur ekkert komið út úr þessu öllum saman og samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef frá fundinum í dag á ekkert að koma út úr þessu.

Samkvæmt þeim upplýsingum er ríkisstjórnin algerlega úrræðalaus og stefnulaus í bæði atvinnumálum og skuldamálum heimilanna. Það var fjallað um skuldamál heimilanna í dag og það er ekki komin fram nein stefna af hálfu ríkisstjórnarinnar í þá átt að bjarga skuldugum heimilum þrátt fyrir að þau hafi niðurstöður útreikninga í höndunum. Þá á ég við útreikna Sigurðar Snævarr og reiknimeistara stjórnarinnar.“

Ómakleg málsvörn stjórnarliða

- Stjórnvöld gagnrýna fulltrúa stjórnarandstöðunar fyrir að hafa vikið af samráðsfundinum í dag og segir að hún sé ekki að taka þátt í viðleitni stjórnarinnar til að taka á þessu máli. Hvað segirðu um þessa málsvörn? 

„Hún er ómakleg. Við höfum mætt á alla þá fundi sem við höfum verið boðuð á. Við höfum lagt fram tillögur á flestum þeirra og það hefur aldrei verið hlustað á þær tillögur. Það er málið. Þau eru ekki þarna til að hlusta á aðra. Þau eru þarna til að þykjast vera að gera eitthvað. Það náðist smá árangur í átt til samráðs þegar Icesave-málið upprunalega var og hét en það er í eina skiptið sem það hefur náðst eitthvað samráð og það var ekki á vegum Jóhönnu og Steingríms.

Það var á forræði Guðbjarts Hannessonar. Maður situr með þeim fund eftir fund og kemur með málefnalegar tillögur um samráð og lausnir á málunum og þau horfa á mann eins og að maður sé einhvers konar marsbúi sem komi þeim ekki frekar við heldur en rykið á götunni. Þau hafa engan áhuga á að hlusta á annað fólk. Það er bara þannig.“

Ráða ekki við verkefnið

- En nú boðar Samfylkingin, stærri stjórnarflokkurinn, samræðustjórnmál?

„Þetta eru ekki samræðustjórnmál. Jóhanna og Steingrímur eru þrotin örendi. Þau valda ekki vandamálinu. Þau sjá enga leið út úr því og þau vita ekkert hvað þau eigi að gera. Lýðræðisumbæturnar sem lofað var reyndust bara tóm lygi.“

- Nú mæðir mikið á Jóhönnu Sigurðardóttur. Telurðu að hún ráði við verkefnið?

„Nei. Hún ræður ekki við þetta og ekki Steingrímur heldur. Það er búið að mæða mikið á þeim og þau eru búin að vera undir alveg gríðarlegu álagi frá því í febrúar 2009 þegar minnihlutastjórnin tók við. Við skulum ekki gleyma því að þau byrjuðu á röngum fæti nánast á fyrsta degi.

Hluti af samkomulaginu sem þau gerðu við Framsóknarflokkinn til að verja minnihlutastjórnina falli var að upplýsa hann um allt sem að gerðist, til að mynda varðandi Icesave. Það var ekki þornað blekið á því samkomulagi þegar þau fóru að véla um Icesave bak við Framsóknarflokkinn.“

Blekktu kjósendur 

Þór segir stjórnvöld hafa haldið sannleikanum leyndum fyrir almenningi í Icesave-deilunni. 

„Þau upplýstu aldrei þjóðina eða þingið, eða kjósendur fyrir þingkosningarnar, að aðgöngumiði Íslendinga að ESB væri að gengið yrði frá Icesave í þágu Breta og Hollendinga. Það kom fram í gögnum sem voru í leynimöppu fjármálaráðherra og Wikileaks komst í og lak svo á sínum tíma. Það stendur þar svart á hvítu,“ segir Þór Saari.

Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja mótmælir fyrirhuguðum niðurskurði á táknrænan í Reykjanesbæ í október.

Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja mótmælir fyrirhuguðum niðurskurði á táknrænan í Reykjanesbæ í október. Morgunblaðið/Júlíus

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar.

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar. Ómar Óskarsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Burðarpokar og burðarsjöl www.hondihond.is
Fullt hús af burðarpokum og burðarsjölum. Henta vel fyrir börn frá 0-3 ára. O...
Til sölu Harley davidson 100ára afmælisútgáfa
Harley davidson Dyna glide(fxdvg wide 100ára afmælisútgáfa uppl 6624961...
Gisting í Eyjafirði
Bjóðum upp á gistingu í íbúð með tveimur tveggja manna herbergjum með uppábúnum ...
2003 Honda Civic EX Great Condition
2003 Honda Civic EX 72,159 km(44,838 miles) Price / Verð: 1.198.000 Arnar ...
 
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...