25% fyrirtækja ætla að segja fólki upp

Starfsstéttir innan fyrirtækja sem hyggjast fækka skiptast hins vegar þannig að ófaglærðir eru 61%, iðnaðarmenn ... stækka

Starfsstéttir innan fyrirtækja sem hyggjast fækka skiptast hins vegar þannig að ófaglærðir eru 61%, iðnaðarmenn 31% og háskólamenntaðir 10%. mbl.is/G. Rúnar

Sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum Samtaka atvinnulífsins hyggjast ekki gera breytingar á starfsmannafjölda á næstu sex mánuðum, 16% áforma fjölgun starfsmanna en 25% hyggjast fækka þeim. Á árinu 2010 hefur rúmur helmingur fyrirtækjanna haldið óbreyttum starfsmannafjölda, 16% hafa fjölgað en 30% hafa fækkað starfsmönnum.  Þetta kemur fram í könnun sem kynnt var á  fundi Samtaka atvinnulífsins á Akureyri í morgun.

Um stöðu atvinnumála lýstu formaður SA og framkvæmdastjóri yfir vilja til samstarfs við aðra aðila á vinnumarkaðnum og ríkisstjórnina um að snúa af braut stöðnunar og atvinnuleysis. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, sögðu það löngu tímabært að hefja sókn í atvinnulífinu og skapa ný störf til að endurheimta á næstu árum lífskjör fólks og kveða niður atvinnuleysi.

  Ný störf og sókn í atvinnulífinu er forsenda fyrir því að hægt sé að greiða niður skuldir ríkisins á næstu árum og spara þjóðinni þar með háar fjárhæðir sem fara að öðrum kosti í greiðslu vaxta. Vilmundur sagði á fundinum í morgun sem fram fór á Hótel KEA að vandinn sem þjóðin búi við í dag sé heimatilbúinn og aðgerðaleysi auki enn á vandann.

 Starfsstéttir innan fyrirtækja sem hyggjast fjölga starfsmönnum skiptast þannig að háskólamenntaðir eru 43%, ófaglærðir 38% og iðnmenntaðir 19%. Starfsstéttir innan fyrirtækja sem hyggjast fækka skiptast hins vegar þannig að ófaglærðir eru 61%, iðnaðarmenn 31% og háskólamenntaðir 10%.

Fyrirtækin í könnuninni endurspegla sjávarútveg, iðnað, byggingastarfsemi, veitur, verslun og samgöngur, hótel og veitingahús, fjármála- og tryggingafyrirtæki. Áætlað er að í þessum atvinnugreinum starfi um 88.000 manns um þessar mundir.

 Á árinu 2010 fækkaði störfum um 2,2% hjá þeim fyrirtækjum sem þátt tóku í könnuninni sem svarar til tæplega 2.000 starfa. Launagreiðslur sem féllu brott af þeim sökum nema 10 milljörðum króna á ári. Fækkun starfa var mest í verslun, þjónustu og samgöngum annars vegar og iðnaði og mannvirkjagerð hins vegar, eða liðlega 3%, en fækkun starfa hjá fyrirtækjum í sjávarútvegi er 2% samkvæmt könnuninni. Starfsmönnum hefur á móti fjölgað í ferðaþjónustu og fjármálaþjónustu um innan við 1% í hvorri grein, segir á vef Samtaka atvinnulífsins.

 Þýðir að störfum muni fækka um 1 þúsund

Á næstu sex mánuðum áforma fyrirtækin að fækka starfsfólki um 1,1% sem nemur tæplega 1.000 störfum. Launagreiðslur sem falla brott af þeim sökum nema um 5 milljörðum króna á ársgrundvelli. Áformuð fækkun er mest í sjávarútvegi og iðnaði, tæplega 3% í hvorri grein, en fækkunin í verslun, þjónustu og samgöngum er liðlega 1%. Í ferðaþjónustu er áformað að fjölga starfsmönnum um tæplega 4% og um 1% í fjármálaþjónustu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Skoda Fabia
Skoda Fabia árg. 2006, ekinn 135 þús. Beinsk., útvarp m. geislaspilara, sumar- o...
TILBOÐ Á DEKKJUM
Tilboð á dekkjum 155 R 12 kr. 6.900. 135 R 13 kr. 5900. 165 R 13 kr. ...
Volvo Penta báta vél til sölu.48 hp
Vél í lagi , 48 hestafla nýtekinn úr bát vegna stækkunar á vél ca árg 86 Verð c...
Til sölu Nissan Almera - árgerð 2005
Til sölu Nissan Almera 1.8l, árgerð 2005. Sjálfskiptur. Dráttarkúla. Ekinn 110....
 
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...