Rannsókn á Gildi hætt

Morgunblaðið/Heiddi

Ríkislögreglustjóri hefur hætt rannsókn á lífeyrissjóðnum Gildi og telur hvorki tilefni né grundvöll til að halda áfram slíkri rannsókn. Lífeyrissjóðnum var tilkynnt um þetta 18. nóvember síðastliðinn. 

„Sjóðfélagi í Gildi, Jóhann Páll Símonarson, óskaði eftir því í lok septembermánaðar 2010 að starfsemi Gildis myndi sæta rannsókn vegna þess að ætluð háttsemi stjórnar og starfsmanna sjóðsins kynni að varða við lög. Ríkislögreglustjóri sendi erindið til Fjármálaeftirlitsins, sem taldi að efni bréfs sjóðfélagans gefi ekki tilefni til að hefja sérstaka rannsókn af hálfu eftirlitsins á Gildi lífeyrissjóði.

Með vísan til framangreinds telur ríkislögreglustjóri að hvorki sé tilefni né grundvöllur til að halda rannsókn málsins áfram,“ segir í fréttatilkynningu frá Gildi-lífeyrissjóði í dag.      
 

Gildi lífeyrissjóður.
Gildi lífeyrissjóður.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert