199 Lexusbílar innkallaðir

Bíll af gerðinni Lexus IS250.
Bíll af gerðinni Lexus IS250.

Toyota á Íslandi hefur innkallað 199 Lexusbíla, sem væntanlega eru í umferð hér á landi. Um er að ræða 14 bíla af gerðinni Lexus GS300, framleidda á árunum 2004 til 2006,  sem innkallaðar eru vegna bilana í tengingu í bensíngeymi og 185 bíla af gerðinni Lexus GS300, IS250 og RX300, framleidda á árunum 2003 til 2005, vegna leka í höfuðdælu.

Fram kemur á vef Neytendastofu, að hægt sé að leita nánari upplýsinga hjá þjónustuveri Toyota en fyrirtækið munu hafa samband við  eigendur umræddra bíla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert