Vill styrkja tengsl við Norðurlönd
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, hefur boðið þjóðarleiðtogum Norðurlandanna fimm og Eystrasaltslandanna þriggja til leiðtogafundar í janúar með það að markmiði að styrkja efnahagsleg- og félagsleg tengsl Breta við þessi ríki.
Að sögn Reutersfréttastofunnar hefur Cameron boðið leiðtogum Íslands, Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands, og Eistlands, Lettlands og Litháens til fundar 19. og 20. janúar. Þar eigi að fjalla um ýmis félagsleg mál en einnig um leiðir til að styrkja samkeppnisstöðu ríkjanna og hugsanlega um olíuiðnaðinn í Norðursjó.
„Á þessum fundi mun koma saman fólk frá níu löndum, sem fást við sameiginleg vandamál," hefur Reuters eftir talsmanni Camerons.
Breski forsætisráðherrann hefur lagt áherslu á utanríkismál eftir að hann tók við völdum í Bretlandi í maí. Ríkisstjórn Íhaldsflokksins og Frjálslyndra demókrata vill auka útflutning til að ná jafnvægi í hagkerfinu á ný og styrkja atvinnulífið á sama tíma og opinber útgjöld eru skorin mikið niður.
Að sögn Reuters er Svíþjóð í 10. sæti yfir þau ríki, sem kaupa mestar vörur af Bretlandi. Noregur er í 23. sæti, Danmörk í 24. sæti og Finnland í 30. sæti. Hin ríkin fjögur eru ekki á lista yfir 50 helstu viðskiptalönd Bretlands.
Einkennileg hugmynd
AP fréttastofan hefur eftir Richard Whitman, sérfræðingi í Evrópustjórnmálum, að hugmynd Camerons um þennan leiðtogafund sé einkennileg vegna þess að hún vísi til fornra tengsla Bretlands og Skandinavíu.
Mörg þessara ríkja deili með Bretum tortryggni í garð Evrópusambandsins og vilji ekki að samstarf ríkjanna innan þess verði of náið. Þá séu tvö þeirra, Ísland og Noregur, ekki í ESB þótt Ísland hafi sótt um aðild.
„Ef maður vill vera óvinsamlegur, þá er hægt að segja, að breska samsteypustjórnin sé að styrkja tengsl sín við efasemdararm Evrópusambandsins," sagði Whitman
Blaðið The Herald í Skotlandi hefur hins vegar í dag eftir heimildarmönnum á skrifstofu breska forsætisráðherrans, að tilgangurinn með fundinum sé ekki að reyna að skapa valdamótvægi við Evrópusambandið heldur einungis að búa til vettvang til að skiptast á skoðunum og hugmyndum.
Skotar sárir
Skoska heimastjórnin hefur gagnrýnt, að
Alex Salmond, forsætisráðherra, sé ekki á gestalistanum á fundinum í
janúar í ljósi þess að þar eigi að ræða olíu- og gasvinnslu og
endurnýjanlega orku.
Bloggað um fréttina
-
Axel Jóhann Axelsson Eru Bretar að búast við sundrungu ESB? -
Páll Vilhjálmsson Valkostir við Evrópusambandið -
Ólafur Ingi Hrólfsson Félagsleg tengsl.?????
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 18. janúar 2011, Innlent Jóhanna fundar með Cameron
- Fimmtudagur, 20. janúar 2011, Innlent Cameron fræddur um íslenska fæðingarorlofið
- Fimmtudagur, 20. janúar 2011, Innlent Norrænn leiðtogafundur í London
- Mánudagur, 3. maí 2010, Innlent Kristín nýr formaður Rithöfundasambandsins
- Fimmtudagur, 10. mars 2011, Innlent Ræðst af niðurstöðu rannsóknarinnar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































