Forstöðumaður Krossins sakaður um kynferðislega áreitni
Eftir Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.isGunnar Þorsteinsson, forstöðumaður trúfélagsins Krossins, segir ásakanir, sem komið hafa fram á hendur honum um kynferðisbrot, algerlega tilhæfulausar. Fimm konur hafa sent bréf til stjórnar safnaðarins og fjölmiðils og saka Gunnar um kynferðislega áreitni og þöggun. Eru það m.a. tvær fyrrverandi mágkonur Gunnars sem bera hann sökum.
Vefmiðillinn Pressan hefur fjallað um málið og birti fyrr í dag bréf frá nokkrum konum til stjórnar Krossins, þar á meðal tveimur fyrrverandi mágkonum Gunnars. Í bréfinu er Gunnar sakaður um kynferðislega áreitni og að reyna að þagga niður málið. Er þess krafist að stjórn Krossins bregðist við með hagsmuni þeirra og safnaðarins að leiðarljósi.
Að því er kemur fram á Pressunni segja konurnar, að samkvæmt lögum séu brotin fyrnd og forsendur fyrir kærum á hendur Gunnari því brostnar. Það sé hins vegar ljóst að afleiðingarnar fyrnist ekki en nokkrar kvennanna hafi verið undir lögaldri þegar á þeim var brotið.
„Þessar ásakanir eru gersamlega tilhæfulausar. Ég mun leita allra úrræða sem ég hef til að koma því á framfæri. Það er algerlega ólíðandi hvernig Pressan hefur höndlað þetta mál. Þó að söguburður sé kominn á pappír er hann bara söguburður,“ segir Gunnar í samtali við mbl.is en hann útilokar ekki að leita réttar síns fyrir dómstólum. Þannig hafi hann áður stefnt Pressunni fyrir umfjöllun sína um málið.
„Ég er náttúrulega mjög sleginn og miður mín. Þetta er þungbært að þurfa að standa í þessari stöðu því að ég fyrirlít svona framkomu gagnvart fólki,“ segir hann. Gunnar neitar alfarið að hafa reynt að þagga málið niður. Hann hafi hvatt fólk til að koma fram því að málið hafi verið á flökkusagnaformi um mánaðarskeið. Sögunum hafi verið dreift og beitt gegn honum og söfnuðinum.
„Ég tel að þetta sé af safnaðarpólitískum toga þannig að málið er í mörgum skilningi alveg grafalvarlegt,“ segir Gunnar.
Bloggað um fréttina
-
Torfi Kristján Stefánsson Var það ekki þetta sem Jónína sagði? -
Riddarinn Sá ydar sem syndlaus er. -
Hörður Sigurðsson Diego Saklaus þar til annað er sannað. -
Björgvin Guðmundsson Gunnar í Krossinum sakaður um kynferðislega áreitni -
-
Svanur Gísli Þorkelsson Pólitíkin í Krossinum
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 3. desember 2010, Innlent Gunnari verði vikið frá
- Föstudagur, 4. mars 2011, Innlent Heppilegt að málið sé komið í lögformlegan farveg
- Mánudagur, 29. nóvember 2010, Innlent Gunnar stígur til hliðar
- Miðvikudagur, 9. mars 2011, Innlent Enginn vildi taka sæti í fagráði Krossins
- Föstudagur, 17. september 2010, Innlent Prestur viðurkenndi kynferðisbrot
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































