Fær ekki að halda hænur

Borgarráð Reykjavíkur staðfesti í gær þá niðurstöðu umhverfis- og samgönguráðs borgarinnar að synja ósk frá íbúa við Hjallaveg í Reykjavík um að halda fjórar svonefndar landnámshænur. 

Borgarráð bendir samt á, að hænur séu leyfðar innan borgarmarkanna, svo sem á Kjalarnesi og efst í Seljahverfi. Þá beindi borgarráð því til nýrrar heilbrigðisnefndar að kanna hvort ástæða sé til að taka samþykktir um búfjárhald og gæludýrahald til endurskoðunar eða leyfa aukið dýrahald á völdum svæðum í borginni með breytingum á skipulagi.

Umhverfis- og samgönguráð synjaði ósk hænueigandans í byrjun nóvember en lét þá bóka, að hún fagnaði því að íbúar borgarinnar vilji stuðla að sjálfbærum lífsháttum og fjölbreyttu dýralífi í borginni. Slíkt verði hinsvegar að gerast í sátt og samlyndi við aðra borgarbúa og samkvæmt þeim reglum sem gilda um búfénað innan borgarmarkanna.

„Ráðið getur ekki veitt umbeðið leyfi þar sem skipulags- og byggingasvið hefur gefið neikvæða umsögn og ekki virðist sátt hjá nágrönnum um hina fiðruðu íbúa,“ segir í afgreiðslu ráðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert