Engin drög verið kynnt

Heimasíða Icesave
Heimasíða Icesave DYLAN MARTINEZ

Lítið hefur þokast í viðræðum um Icesave-samkomulagið við Breta og Hollendinga síðan í september. Engin drög liggja fyrir, og hugsanlegt er að efnahagslegar björgunaraðgerðir á Írlandi geti tafið það að samkomulag náist, að mati Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins.

Lárus Blöndal, í samninganefd Íslands vegna Icesave, kynnti þingflokkum stöðu mála nýverið. Sigmundur segir hann einfaldlega hafa rifjað upp þá samninga sem menn töldu sig hafa getað fengið í september. Síðan þá hafi lítið gerst, og umfjöllun um málið meðal annars slegið á frest vegna mótmælanna á Austurvelli við setningu Alþingis.

Sigmundur bendir á það að lánasamningur Breta og Íra, sem felur það í sér að Bretar lána nágrönnum sínum háar fjárhæðir á 5,8% vöxtum geti gert það að verkum að erfiðara sé fyrir stjórnvöld þar á bæ að réttlæta samkomulag við Íslendinga á mun lægri vöxtum. Rætt hefur verið um 3% vexti, en að teknu tilliti til þess „vaxtafrís“ sem reikna má með að verði í samningum verða vextirnir nær 2,7%.

Stefnt er að því að tryggja stuðning Alþingis við samningsdrög, þegar að því kemur að þau liggja fyrir, áður en samkomulag verður formlega undirritað. Þetta er meðal annars gert til að komast hjá því að sagan endurtaki sig frá því í ársbyrjun, þegar forseti synjaði lögum um greiðslu Icesave staðfestingar.

Sigmundur segir ríkisstjórnina hafa farið þá leið að fá hagsmunasamtök á borð við samtök atvinnulífsins til þess að þrýsta á þingmenn, einkum í Sjálfstæðisflokknum um að tryggja framgang málsins. Þetta sé í raun það eina sem gerst hafi í málinu undanfarið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert