Óvissa um meirihlutann

Frá Alþingi.
Frá Alþingi. mbl.is/Heiðar

Þriðju umræðu um frumvarp til fjárlaga lauk á tólfta tímanum í gærkvöld en atkvæði verða greidd kl. 11.00 í dag. Meirihluti fjárlaganefndar gerir tillögur í yfir 50 liðum til viðbótar þeim fjölda tillagna sem kom fram fyrir aðra umræðu í byrjun desember.

Þrátt fyrir þessar breytingar á milli umræðna er enn megineinkenni frumvarps til fjárlaga að skera víðast hvar niður í grunnþjónustu.

Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, segir í samtali við Morgunblaðið að þriðja umræða hafi ekki breytt afstöðu hennar til fjárlaganna.

Atli Gíslason kvaðst ekki vilja gera grein fyrir afstöðu sinni í fjölmiðlum heldur yrði hún kunngjörð við atkvæðagreiðslu um frumvarpið í dag.

Ekki náðist í Ásmund Einar Daðason þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og kemur afstaða hans einnig í ljós við atkvæðagreiðsluna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert