Síldarflutningabíll valt

Talið er að blint hríðarél hafi valdið því að bíllinn …
Talið er að blint hríðarél hafi valdið því að bíllinn fór útaf og valt. mbl.is/Jónína Óskarsdóttir

Flutningabíll sem dró gámavagn með 40 feta löngum gámi fór útaf í Fáskrúðsfirði um kl. 19.00 í kvöld og valt. Talið er að blindhríð hafi valdið óhappinu. Ökumaðurinn var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað til aðhlynningar, en meiðsl hans voru talin vera minniháttar.

Flutningabíllinn var á suðurleið frá Fáskrúðsfirði, fullhlaðinn saltaðri síld í tunnum, og var nýlagður af stað þegar óhappið varð. Starfsmenn Loðnuvinnslunnar komu fljótt á vettvang og björguðu farminum. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert