Viljayfirlýsing um metanólverksmiðju

Kröfluvirkjun.
Kröfluvirkjun. mbl.is/GSH

Landsvirkjun og Carbon Recycling International hafa undirritað viljayfirlýsingu um að meta hagkvæmni þess að reisa metanólverksmiðju í nágrenni jarðvarmavirkjunar Landsvirkjunar við Kröflu á Norðausturlandi.

Fram kemur í fréttabréfi Landsvirkjunar, að gert er ráð fyrir að efnamælingar hefjist á svæðinu í upphafi næsta árs. Landsvirkjun og CRI kynntu sveitarstjórn Skútustaðahrepps þessar hugmyndir fyrr í þessari viku.

Verksmiðjan myndi hreinsa koltvísýring úr útblæstri Kröflustöðvar og breyta honum í metanól með hjálp raforku og vatns. Hugsanleg orkuþörf verksmiðjunnar er 50-60 MW og myndi hún þá framleiða 50-100 milljónir lítra af metanóli á ári með hliðsjón af þeirri framleiðsluaðferð sem yrði notuð.

Undirbúningur við hugsanlega verksmiðju gæti hafist á fyrri hluta árs 2011 ef fýsileiki metanólframleiðslu á svæðinu verður staðfestur og Landsvirkjun og CRI ná samkomulagi um skilmála orkusölusamnings. Í undirbúningi felst meðal annars öflun nauðsynlegra leyfa og samningaviðræður við hagsmunaaðila.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert