Fíkniefni og tóbak fundust í flutningaskipi

Mynd úr safni
Mynd úr safni

Lögreglan á Eskifirði, í samvinnu við tollgæsluna á Eskifirði, fór um borð í flutningaskipið El-Bravo sem lá við Mjóeyrarhöfn við Reyðarfjörð í morgun. Við leit í skipinu lagði tollgæslan hald á óverulegt magn af vindlingum.  Í tengslum við aðgerðina voru tveir karlmenn handteknir og fór lögreglan í húsleit á heimili þeirra í Fjarðabyggð.

Hald var lagt á nokkur grömm af kannabis, neysluáhöld og kannabisplöntu, ásamt smygluðum vindlingum.  Málin teljast upplýst og hefur mönnunum verið sleppt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. 


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert