Telur að Lilja eigi að sýna Össuri skilning

Sigurjón Þórðarson
Sigurjón Þórðarson mbl.is

Sigurjón Þórðarson, formaður Frjálslynda flokksins, telur að Lilja Mósesdóttir ætti að sýna því meiri skilning að líffræðingurinn Össur Skarphéðinsson grípi til dýralíkingamáls. Líkt og fram kom á Facebook-síðu Lilju í gærkvöldi var hún ósátt við ummæli utanríkisráðherra á gamlársdag er hann líkti Lilju við hryssu.

„Össur segist vera fróðari en flestir um kynlíf laxfiska en eitthvað á karlinn samt erfitt með að nýta þá þekkingu til þess fara með gagnrýnum hætti yfir hræðilega ráðgjöf Hafró.

Ekki hefur dýralíkingamál alltaf þótt neikvætt í íslenskum stjórnmálum. Hver man ekki eftir ráðherranum úr Húnavatnssýslu sem var óðum að jafna sig eftir erfiða aðgerð og sagðist vera álíka sprækur og sex vetra graðfoli.

Össur getur verið meinfyndinn en minnir mig engu að síður oft á vel haldið bröndótt heimilisfress.  Hann á það til að ýfa sig og setja upp kryppuna gagnvart andstæðingum þegar hann veit af öruggu skjóli," ritar Sigurjón á bloggvef sinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert