Umræðum ekki lokið

Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason yfirgefa þingflokksfund VG í kvöld.
Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason yfirgefa þingflokksfund VG í kvöld. mbl.is/Golli

Þingmennirnir Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir voru þögul þegar þau gengu fyrst fundarmanna af þingflokksfundi Vinstri grænna nú fyrir stuttu. Aðspurð hvort deilurnar innan þingflokksins væru til lykta leiddar sagði Atli að umræðum væri ekki enn lokið.

Atli kvað fundinn hafa farið friðsamlega fram: „Nei [fundurinn var] ekkert erfiður. Alveg pollrólegur.“ Atli sagði ennfremur að umræðurnar myndu halda áfram á næsta þingflokksfundi á mánudaginn næstkomandi.

Atli og Lilja gáfu lítið fyrir sögusagnir þess efnis að þau myndu ekki lengur starfa með þingflokknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert