Undirskriftir gegn vegtollum afhentar

Fulltrúar FÍB og samgönguráðherra í dag.
Fulltrúar FÍB og samgönguráðherra í dag. mbl.is/Kristinn

Fulltrúar Félags íslenskra bifreiðaeigenda gengu í dag á fund Ögmundar Jónassonar, samgönguráðherra, og afhentu honum undirskriftir ríflega 41.500 einstaklinga undir mótmæli gegn  hugmyndum um vegtolla á leiðum út frá höfuðborgarsvæðinu.

FÍB segir, að undirtektirnar við undirskriftasöfnunina sýni ljóslega hug landsmanna til hinnar lítt geðfelldu hugmyndar stjórnvalda að hyggjast mismuna íbúum landsins með sérstakri skattheimtu eftir búsetu. Hún sýni líka að landsmenn séu andsnúnir því að taka fáeina mikilvægustu kafla hins íslenska þjóðvegakerfis úr sameiginlegri eigu allra landsmanna og færa þá á forræði hlutafélaga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert