Loðnan óvenju austarlega

Loðnuskipin eru að veiðum austur og norðaustur af landinu.
Loðnuskipin eru að veiðum austur og norðaustur af landinu. mbl.is/Árni Sæberg

Loðnuskipin hafa fengið þokkalegan afla síðustu daga á miðunum austur og norðaustur af landinu. Um tugur skipa er byrjaður veiðar og fer aflinn ýmist í frystingu eða bræðslu.

Veður hefur verið rysjótt frá því að veiðar hófust eftir áramót. Loðnan gengur mjög austarlega og í gær stækkaði sjávarútvegsráðuneytið hólf þar sem leyft er að veiða með flotvörpu um 40 mílur austur á bóginn.

Haft er eftir Albert Sveinssyni skipstjóra á vef HB Granda að aflinn hafi fengist norður af Langanesi. Mjög slæmt veður hafi verið alla veiðiferðina og sjólag þannig að það hafi verið á mörkum þess að hægt væri að stunda veiðar.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert