Hætta öllum þreifingum við SA
Miðstjórn ASÍ lýsir yfir megnri óánægju með þá stöðu sem upp er komin í yfirstandandi kjarasamningsviðræðum. Hefur samninganefnd ASÍ ákveðið að hætta öllum þreifingum við SA um gerð kjarasamnings. ASÍ segir að það muni ekki láta atvinnurekendur taka viðræðurnar í gíslingu til að verja sérhagsmuni útgerðamanna.
ASÍ segir að samningsaðilar hafi á undanförnum vikum kannað forsendur fyrir því að samið verði til allt að þriggja ára á grundvelli samræmdrar launastefnu og aðgerðaáætlunar í efnahags-, atvinnu- og félagsmálum.
„Allt benti til þess að hægt væri að ná breiðri samstöðu um slíka leið. Nú hafa Samtök atvinnulífsins lýst því yfir að samtökin muni taka efni slíks samnings og nota sem þvingunaraðgerð við stjórnvöld til að knýja fram að væntanlegar breytingar á fiskveiðistjórnarlöggjöfinni verði þóknanlegar LÍÚ,“ segir í ályktun frá miðstjórn frá ASÍ.
„Þetta er með öllu óásættanlegt. Alþýðusambandið getur ekki og mun ekki láta atvinnurekendur taka kjarasamningaviðræður í gíslingu til að verja sérhagsmuni útgerðarmanna. Því hefur samninganefnd ASÍ ákveðið að hætta öllum þreifingum við Samtök atvinnulífsins um gerð kjarasamnings á fyrrgreindum forsendum,“ segir ASÍ ennfremur.
Þá hvetur miðstjórn ASÍ aðildarfélög sín til að hraða vinnu við gerð kjarasamninga á grundvelli þeirrar kröfugerðar sem þau hafi lagt fram við atvinnurekendur. Jafnframt áréttar ASÍ kröfuna um að velferðarráðherra leggi þegar fram neysluviðmið sem hann hefur boðað.
„Miðstjórn ASÍ átelur Samtök atvinnulífsins harðlega fyrir að láta þrönga sérhagsmuni fámenns hóps útgerðarmanna ráða afstöðu sinni, í stað þess að horfa til hagsmuna þorra fyrirtækja og alls launafólks.
Að sama skapi er það mat miðstjórnar ASÍ að það sé algerlega óásættanlegt að atvinnurekendur dragi úr hömlu að ljúka kjarasamningum. Í ljósi þeirra miklu óvissu sem ríkir í íslensku efnahags- og atvinnulífi telur miðstjórnin flest rök hníga að því að gera kjarasamninga til skamms tíma,“ segir í tilkynningu.
Bloggað um fréttina
-
Jóhannes Laxdal Baldvinsson Þvergirðingur -
Guðmundur Frímann Þorsteinsson Húrra -
Hjörleifur Harðarson bíðum nú hlægt neyslu viðmið -
Jón Ingi Cæsarsson Tilraun til valdaráns.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 9. febrúar 2011, Innlent Segja afstöðu SA lögbrot
- Laugardagur, 16. apríl 2011, Innlent Tala um gíslatöku LÍÚ
- Mánudagur, 31. janúar 2011, Innlent Krefst þess að launafólki sé sýnd virðing
- Mánudagur, 24. janúar 2011, Innlent Viðræðum um samræmda launastefnu hætt
- Þriðjudagur, 1. febrúar 2011, Innlent SA þarf að fara að ákveða sig
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































