Ákvörðun Hæstaréttar kom á óvart
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, sagði á Alþingi í dag að það hefði komið sér á óvart, að í ljósi ríkra almannahagsmuna skuli Hæstiréttur hafa komist að þeirri niðurstöðu að ógilda beri kosningu til stjórnlagaþings.
Sagði Ögmundur að beina þurfi sjónum að þremur aðilum í umræðu um málið: Hæstarétti, löggjafanum og þeim sem sáu um kosninguna.
Ögmundur sagði að niðurstöðu Hæstaréttar verði ekki breytt og niðurstöðu hans verði hlítt. „Það þýðir ekki að Hæstiréttur sé hafinn yfir gagnrýni enda fer nú fer fram eðlileg umræða í þjóðfélaginu í hópi lögspekinga og almennings og á Alþingi um niðurstöðu Hæstaréttar og lögin sem hann byggir niðurstöðu sína á," sagði Ögmundur.
Ögmundur sagði, að beina yrði einnig sjónum að löggjafanum, Alþingi. Lögin um stjórnlagaþing hefðu verið undirbúin í forsætisráðuneytinu og síðan farið til umfjöllunar í þinginu og til allsherjarnefndar þingsins. Loks hafi frumvarpið verið samþykkt með breytingum, með einu mótatkvæði. Sjálfstæðisflokkurinn hefði setið hjá, ekki vegna gagnrýni á lögin sem slík heldur það fyrirkomulag, sem verið var að lögleiða.
Loks sagði Ögmundur að beina þyrfti sjónum að framkvæmdaaðilum, þeim sem sáu um kosningarnar en það hefðu einkum verið dómsmála- og mannréttindaráðuneytið, landskjörstjórn og sveitarfélög.
„Allt á að þola ljósið og ég frábið mér allar tilraunir til þöggunar," sagði Ögmundur. Sagði hann mjög mikilvægt að þetta mikilvæga mál fái ítarlega skoðun.
Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði að Ögmundur hefði í ræðu sinni reynt að beina sjónum fólks frá þeim, sem bæru hina pólitísku ábyrgð á málinu. Hann hefði reynt að halda því fram að Hæstiréttur hefði brugðist, sveitarstjórnirnar og allsherjarnefnd.
„Þetta skyldi þó ekki snúast um pólitík," sagði Ögmundur þá.
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, sagði að kostnaður við stjórnlagaþingið og undirbúning þess væri orðinn rúmur hálfur milljarður króna. Ögmundur sagði hins vegar, að kostnaður vegna stjórnlagaþingsins væri 281.696.000 krónur.
Bloggað um fréttina
-
Heimir L Fjeldsted Biðjist afsökunar -
Sigurður Haraldsson Kemur ekki á óvart! -
S i g u r ð u r Sigurðarson Ljóst hverjir bera ábyrgðina -
Kristbjörn Árnason Skammarleg umræða á þingi í kjölfar niðurstöðu Hæstaréttar -
Gunnar Heiðarsson Í anda Sovét -
Viggó Jörgensson Hæstiréttur dæmir eftir lögum - Ögmundur líttu þér nær. -
Georg Birgisson Rót ógildingarinnar -
Benedikt V. Warén Múlaþing, það er málið. -
Haraldur Haraldsson Ákvörðun Hæstaréttar kom á óvart/hersu margir vöruðu við þessu?,en það ... -
Sigurður Hrellir Þau prédika eitt en praktísera annað
Innlent »
- Gerir alvarlegar athugasemdir
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Þingið brást stjórnlagaráði
- Ný skátaöld að hefjast
- Hefur afplánun á Skólavörðustíg
- Auka þarf umfang vöktunar
- Dráttur í beinni
- Þingmenn lesa Passíusálmana
- Ísing á Hellisheiði
- Lánað án trygginga og heimildar
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 25. febrúar 2011, Innlent Kosið 9. apríl
- Þriðjudagur, 22. mars 2011, Innlent Styður ekki tillögu um stjórnlagaráð
- Sunnudagur, 30. janúar 2011, Innlent Ögmundur fundar með stjórnlagaþingsfulltrúum
- Fimmtudagur, 24. mars 2011, Innlent Stjórnlagaráð samþykkt
- Miðvikudagur, 26. janúar 2011, Innlent Rætt um HS Orku á morgun
-
Leita enn að líkum um borð
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina





































