Kemur ekki til greina að hætta við þingið

Kosið til stjórnlagaþings í vetur.
Kosið til stjórnlagaþings í vetur.

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna segir, að Framsóknarflokkurinn hafi barist fyrir stjórnlagaþingi og ekki komi til greina að hætta við þingið.

Lýsir stjórnin yfir miklum vonbrigðum með að jafn illa hafi verið staðið að kosningum til stjórnlagaþings og dómur Hæstaréttar beri vitni um.
 
„Stjórn SUF vill brýna fyrir alþingismönnum að leggja ekki stein í götu þessa máls, heldur tryggja að betur verði staðið að framkvæmd nýrra kosninga, svo þjóðin fái tækifæri til að koma að löngu tímabærri endurskoðun stjórnarskrárinnar," segir í ályktun stjórnarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert