Tugir árekstra í þæfingi á götum borgarinnar

Margt óhappið varð í umferðinni í Reykjavík í gær.
Margt óhappið varð í umferðinni í Reykjavík í gær. mbl.is/Árni Sæberg.

Margir ökumenn áttu í erfiðleikum í þæfingnum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Aðalleiðum var haldið opnum en víða var hálka. Þung færð var á götum sem strætisvagnar ganga ekki um.

Tugir árekstra urðu á höfuðborgarsvæðinu og virtust margir ekki gefa sér nægan tíma til að komast á milli staða.

Lögreglan hafði ekki upplýsingar um slys á fólki. Hálka og éljagangur var á vegum víða á Suðurlandi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert