Undirskriftir afhentar á morgun

Bessastaðir.
Bessastaðir. mbl.is/Árni Sæberg

Forseti Íslands hefur boðað aðstandendur undirskriftasöfnunarinnar kjosum.is til Bessastaða klukkan 11 í fyrramálið til að afhenda undirskriftirnar.

Fram kemur í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands, að Ólafur Ragnar Grímsson bauð í morgun aðstandendum söfnunarinnar að afhenda lista sína kl. 15 í dag á Bessastöðum en talsmenn söfnunarinnar tjáðu forsetaskrifstofu að þeir þyrftu lengri tíma til að sannreyna undirskriftirnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert