Varað við grjóthruni á Siglufjarðarvegi

Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðausturlandi.
Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðausturlandi. mbl.is/Kristinn

Að sögn Vegagerðarinnar er hálka, hálkublettir og snjókoma á Norðurlandi vestra. Þá er varað við grjóthruni og mikilli þoku á Siglufjarðarvegi. Eru vegfarendur beðnir um að aka með gát.

Á Vestfjörðum er snjóþekja og skafrenningur á heiðum en hálkublettir á láglendi.

Það er víða hálka eða snjóþekja, þó aðallega á heiðum, á Vesturlandi.

Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðausturlandi.

Á Austurlandi eru hálkublettir á Breiðdalsheiði en annars greiðfært.

Á Norðausturlandi eru einhverjir hálkublettir.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert