Vilja að ríkið dragi úr álagningu á eldsneyti

Fólk er farið að draga úr akstri vegna verðhækkunar á eldsneyti. stækka

Fólk er farið að draga úr akstri vegna verðhækkunar á eldsneyti. mbl.is/Árni Sæberg

Farið er að bera á því að fólk dragi verulega úr akstri vegna himinhás eldsneytisverðs, að sögn Runólfs Ólafssonar, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda, sem telur að stjórnvöld eigi að bregðast við með tímabundnum lækkunum á álögum á bensín og dísilolíu.

„Það er greinilegt að þanmörkum er náð,“ segir Runólfur og á við að verðið hafi náð þeim þröskuldi að ökumenn sjái sér ekki annað fært en að nota einkabílinn minna.

Hann bendir á þátt ríkisins í útsöluverði og hvernig skattur á hvern bensínlítra hafi hækkað úr 75 kr. árið 2008 í 113 kr. í dag, jafnvel þótt heimsmarkaðsverð á hráolíu hafi þá farið í 147 dali tunnan, borið saman við 116 dali nú, vegna veikari krónu.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, stendur nú í ströngu í kjaraviðræðum. Að viðbættu eldsneytinu hafa hækkanir á hráefnisvörum skilað sér í hækkandi matarverði, líkt og rakið er í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

BYKO.

Verslunarstjóri dæmdur fyrir umboðssvik

16:37 Hæstiréttur dæmdi í dag fyrrverandi verslunarstjóra BYKO á Selfossi í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að umboðssvik. Maðurinn var talinn hafa komið því til leiðar að fyrirtækið 5x fékk afhentar vörur frá versluninni árið 2007 án þess að staðgreiða þær. Meira »

Leiga í félagslegu húsnæði hækkaði um 28%

16:32 Verð á húsaleigu fyrir félagslegar íbúðir hækkaði um 28,6% á tímabilinu 2007 til 2011. 14.055 fengu húsaleigubætur á síðasta ári og 3.756 fengu sérstakar húsaleigubætur. Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar alþingismanns. Meira »

„Enginn greiði gerður með þessu klúðri“

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
16:37 „Það er öllum að verða augljóst að málsmeðferð þessa máls er klúður,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag um afgreiðslu Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Svartir sauðir á hálendinu

Landmannalaugar
16:27 Stjórn Ferðafélags Íslands íhugar að loka öllum skálum félagsins yfir vetrartímann vegna slæmrar umgengni í þeim. Um liðna helgi voru þrír hópar í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum og var lítill svefnfriður í skálanum vegna skrílsláta eins hópsins. Meira »

Vilja starfshóp um póstverslun

Íslandspóstur.
16:03 Ellefu þingmenn úr fjórum flokkum hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fela forsætisráðherra að setja á fót starfshóp sem athugi þróun og regluverk í póstverslun hér og erlendis og geri tillögur um lagabreytingar og aðrar ráðstafanir til að skapa póstverslun viðeigandi samkeppnisstöðu. Meira »

Lýsa eftir ræningja

Spilakassar.
16:30 Lögreglan á Akureyri óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á manni sem framdi rán í Fjölumboðinu við Geislagötu á Akureyri í hádeginu í dag. Um er að ræða spilastað Gullnámunnar. Maðurinn komst af vettvangi með eitthvað af fjármunum úr sjóðsvél staðarins. Meira »

Mæling á PSA ekki áreiðanleg

Krabbameinsrannsóknir.
16:16 Mæling á PSA-mótefni í blóði gefur ekki nægilega áreiðanlegar upplýsingar til að hægt sé að mæla með aðferðinni til skimunar eftir krabbameini í blöðruhálskirtli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landlækni. Meira »

Icesave hefði sett Ísland á hausinn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
16:00 Formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlausson, sagði á Alþingi í dag að skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um afföll íbúðarlána og kostnað við niðurfærslu lána staðfesti það, væru forsendur hennar réttar, að ef Icesave-samningarnir sem ríkisstjórnin hefði reynt að koma í gegn hefðu verið samþykktir hefði það leitt til gjaldþrots íslenska ríkisins. Meira »

Tíðinda að vænta innan tíu daga

Huang Nubo
15:49 „Ég vona að við munum hafa einhver tíðindi innan tíu daga,“ segir Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, spurður um mögulegar fjárfestingar kínverska fjárfestisins Huang Nubo á Norðausturlandi. Hann bætir við að rík áhersla sé lögð á að sem mest sátt náist um málið. Meira »

Lagði mat á vegslóða

Utanvegaakstur er vaxandi vandamál.
15:33 Akstur utan óskilgreindra vega er alvarlegt vandamál hér á landi. Til hefur orðið víðáttumikið kerfi vegslóða án þess að farið hafi verið eftir skipulagsferlum. Gísli Rafn Guðmundsson, nemandi við Landbúnaðarháskóla Íslands vann síðastliðið sumar verkefni sem ber heitið „Skipulagsferlar og matsskalar vegna vegslóða“. Meira »

Ítarlegar upplýsingar um húsaleiguverð

15:46 Þjóðskrá Íslands birtir í fyrsta sinn á morgun upplýsingar um húsaleigu eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu. Um samstarfsverkefni Þjóðskrár og Íbúðalánasjóðs er að ræða en sjóðurinn á 700 leiguíbúðir. Meira »

Rannsókn nauðgunarmála lokið

Egill Einarsson
15:31 Rannsókn lögreglu höfuðborgarsvæðisins á nauðgunarkærum á hendur Agli Einarssyni er lokið. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, staðfesti þetta við fréttavef Morgunblaðsins. Málið er því að nýju komið ákærusviðs lögreglunnar. Meira »

Óljóst um hvað málið snýst

Þórhildur Þorleifsdóttir, fyrrverandi fulltrúi í stjórnlagaráði.
15:06 „Hvað það varðar að við komum að þessu aftur þykir mér það alls ekki afleit hugmynd,“ segir Þórhildur Þorleifsdóttir, sem sæti átti í stjórnlagaráði á síðasta ári, en Alþingi ákvað í gær að vísa frumvarpi ráðsins að nýrri stjórnarskrá aftur til þess til umfjöllunar. Meira »

Ráðgjöf veitt á Atvinnutorgi

Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar skrifuðu undir samning ...
14:25 Í hádeginu í dag skrifuðu þeir Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar undir samning um Atvinnutorg í Hafnarfirði. Meira »

Vaxandi hríðarveður á Vestfjörðum og Norðurlandi

Spáð er hríðaveðri á fjallvegum í kvöld.
14:09 Vaxandi hríðarveður er á flestum fjallvegum á Vestfjörðum og Norðurlandi. Gera má ráð fyrir þéttri ofankomu og skafrenningi austanlands fram á nótt s.s. á Oddsskarði og Fjarðarheiði. Á láglendi nær hins vegar víðast að hlána í dag. Meira »

Selur fylgist með skútunum

Myndarlegur selur heldur til við skútubryggjuna á Ísafirði.
14:52 Segja má að nýr hafnarvörður sé tekinn til starfa við skútubryggjuna á Ísafirði en þar hefur myndarlegur selur haldið sig síðustu daga. Selurinn tekur lífinu með ró og kippir sér lítið upp við umferð mannfólksins á höfninni. Meira »

Þremur sagt upp hjá Becromal

Verksmiðja Becromal á Akureyri.
14:23 Þremur starfsmönnum Becromal á Akureyri var sagt upp störfum í gær. Sex starfsmönnum fyrirtækisins var sagt upp störfum um síðustu mánaðamót. Meira »

Reglur ræddar í Hafnarfirði

Verði drögin samþykkt orðrétt er ljóst að trúar- og lífsskoðunarfélög fá ekki að stunda starfsemi ...
14:07 Drög að reglum um samskipti leik- og grunnskóla við trúar- og lífsskoðunarfélög voru lögð fyrir fræðsluráð Hafnarfjarðar fyrr í vikunni. Drögin eru samljóma reglum sem samþykktar voru í Reykjavík, og segir í þeim að trúarleg innræting og boðun tiltekinna lífsskoðana eigi ekki heima í skólum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HÁRSKRAUT O.FL.
Ferming Hárskraut, hanskar, krossar, armbönd og hringar. Fylgihlutir fyrir fermi...
Sumarhús í Biskupstungum til leigu.
Húsið stendur á mjög fallegum og friðsælum stað og er vel búið öllum þægindum. H...
Eldavél með ofni 50 sm
Til sölu Gorenje eldavél með ofni. Lítur mjög vel út. Stærð 50 X 90 X 60 cm. Kos...
Travel Lite pallhýsi
Fyrir japanska, og stærri bíla. Pantanir fyrir næsta vor óskast staðfestar. Sa...
 
Stúkan lilja
Félagsstarf
l LILJA 6012022219 I...
F0212203-001 einangrað pípuefni

ÚTBOÐ Einangrað pípuefni DN500 Útbo...
Hugbúnaðarsérfræðingur
Tölvur/upplýsingatækni
...
Sýslumaðurinn í vestmannaeyjum - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....