RÚV og 365 bítast enn um boltann
Tvær innlendar sjónvarpsstöðvar hafa sett á dagskrá beina útsendingu frá útileik Íslendinga og Þjóðverja í undankeppni EM í handbolta nk. sunnudag. Til þessa hefur Sjónvarpið verið með sýningarrétt á heimaleikjum Íslendinga, líkt og í gær, en Stöð 2 Sport sýnt beint frá útileikjunum.
Innan herbúða 365 miðla ríkir lítil ánægja með nýjasta útspil þeirra í Efstaleitinu en stöðvarnar hafa sem kunnugt er bitist hart um sýningarrétt á landsleikjum íslenska karlalandsliðsins í handbolta, nú síðast vegna HM í Svíþjóð í janúar sl.
Útsendingin frá útileiknum hefur verið auglýst grimmt af Stöð 2 Sport og áhorfendur minntir á áskriftadeildina, þar sem leikurinn verður í læstri dagskrá. Nú gefst íslenskum sjónvarpsáhorfendum semsagt tækifæri til að sjá leikinn einnig í opinni dagskrá hjá Sjónvarpinu en að öllu óbreyttu í læstri dagskrá á Stöð 2 Sport.
„Með ólíkindum“
Ara Edwald, forstjóra 365 miðla, er ekki skemmt. Athugasemdum hefur verið komið á framfæri við þann aðila sem seldi Stöð 2 Sport sýningarrétt frá leiknum, þýska fyrirtækið Sport5, en samkvæmt upplýsingum blaðsins samdi RÚV við annan aðila. Telur Ari að RÚV geti ekki sýnt sjónvarpsefni sem það hefur ekki rétt á að sýna. „Það er með ólíkindum að þetta geti átt sér stað með ríkisstofnun en þó ekki þegar RÚV á í hlut. Stjórnendur þeirrar stofnunar hafa sýnt af sér ákaflega sérstaka framkomu á markaðnum, og telja sig hafna yfir lög og rétt,“ segir Ari, sem telur engan vafa leika á hvaða sýningarrétt Stöð 2 Sport hefur og hvaða rétt RÚV hefur ekki.Samið fyrir hálfu ári
Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá RÚV, segir RÚV hafa gengið frá samningi um sýningarrétt á þessum leik fyrir hálfu ári og unnið sé í samræmi við það.Spurður um þá gagnrýni forstjóra 365 miðla að RÚV fari ekki eftir leikreglum segir Bjarni að félagið fari ávallt eftir reglum. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um málið að svo stöddu.
Bloggað um fréttina
-
Jón Snæbjörnsson Það sem ekki er hægt að rífast um ? bítast ... -
Hjörtur Herbertsson Ara Edwald forstjóra.... -
Ragnar Borgþórs Verst fyrir HSÍ
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 14. mars 2011, Innlent Telur RÚV hafa sýnt leikinn án leyfis
- Þriðjudagur, 15. mars 2011, Innlent Lögsókn íhuguð ytra
- Miðvikudagur, 23. nóvember 2011, Innlent Útvarpsstjóri braut ekki lög
- Laugardagur, 22. janúar 2011, Innlent Spánarleikur í ólæstri dagskrá
- Fimmtudagur, 6. janúar 2011, Innlent Ari furðar sig á tilboði Rúv
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































