Vetrarfærð á vegum

Vetrarfærð, hálka og snjóþekja, er um allt land, segir í …
Vetrarfærð, hálka og snjóþekja, er um allt land, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. mbl.is/RAX

Vetrarfærð er á Suðurlandi, víða nokkur hálka eða hálkublettir. Hálkublettir eru meðal annars á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Á Vesturlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum vegum. Á Vestfjörðum er víðast hvar hálka, hálkublettir eða snjóþekja.

Á Norðurlandi er hálka, snjóþekja, éljagangur og skafrenningur. Þæfingsfærð er á Hólasandi. Á Austurlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Hálka og éljagangur er á Fagradal og Oddskarði en þæfingsfærð er á Fjarðarheiði. Á Suðausturlandi eru hálkublettir frá Öræfum og vestur úr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert