Nýr búnaður eykur öryggi

Flugstjórarnir Baldvin Birgisson og Þórhallur Haukur Reynisson á reynsluflugi í nýuppgerðum stjórnklefa út af Reykjanesi. stækka

Flugstjórarnir Baldvin Birgisson og Þórhallur Haukur Reynisson á reynsluflugi í nýuppgerðum stjórnklefa út af Reykjanesi.

Endurnýjun stjórnklefa Boeing 757 flugflota Icelandair er hafin og var fyrstu vélinni flogið í áætlunarflugi eftir breytingu í síðasta mánuði. Fram kemur í tilkynningu frá Icelandair að það sé fyrsta flugfélagið í Evrópu sem geri þessa breytingu á Boeing 757 vélum sínum.

Nýi tækjabúnaðurinn auki öryggi flugsins, minnki viðhaldskostnað og sé auk þess léttari en eldri gerðin þannig að eldsneyti sparast.

„Boeing 757 flugvélarnar hafa reynst Icelandair afskaplega vel og henta leiðakerfi okkar frábærlega. Við erum í fararbroddi í þróun þessarar tegundar; við settum vænglinga (winglets) á vélar okkar fyrir nokkrum árum til að spara eldsneyti, við endurnýjuðum flotann með nýjum sætum og skemmtikerfi fyrir alla farþega, og nú er verið að framþróa stjórnklefana og bæta vinnuaðstöðu flugmanna," segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, í tilkynningunni.

Fram kemur að í eldri gerð stjórnklefa séu tveir svokallaðir túpuskjáir hjá hvorum flugmanni auk margskonar mæla sem flugvélinni sé stýrt eftir. Í stað þessa búnaðar komi nú nýir stærri skjáir þar sem allar upplýsingar birtist, þar á meðal gervisjóndeildarhringur, sýn á fyrirhugaða flugleið, hraðamælir, hæðarmælir, fjölstefnuvitar, klukka og það sem flugmenn þurfi að nota í fluginu.

Tvær tölvur séu í stjórnklefanum (Flight Management Computers)  sem flugmenn setji inn fyrirhugaða flugleið og nýi búnaðurinn sæki mun meiri upplýsingar úr tölvunum en áður hafi verið unnt og þessar upplýsingar birtist á þessum nýjum skjám og bæti yfirsýn flugmannsins um framgang flugsins og stöðu vélarinnar.

Jafnframt þessari endurnýjun á stjórnborði flugvélanna sé verið að ljúka við að setja svokallaðan „Data Link“ búnað í flotann, en hann geri stjórnstöð Icelandair á Keflavíkurflugvelli kleift að vera í stöðugu sambandi við flugvélarnar á flugi og á jörðu niðri hvar sem þær séu staddar í heiminum jafnframt því sem stjórnstöðin sjái á skjám hjá sér staðsetningu flugvélanna á hverjum tíma í lofti og á jörðu niðri. Þá sé verið að ljúka við að setja myndavélar fyrir framan flugstjórnarklefa þannig að flugmenn geti séð á skjá hverjir hyggjast koma inn í flugstjórnarklefann.  


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Nýleg springdýna 153 cm. á breidd.
HEFUR VERIÐ Í GEYMSLU, SEM ÞARF AÐ LOSA FLJÓTLEGA. FÆST Á AÐEINS 10.000 UPPL....
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR, BARNAVÖRUR, SNYRTIVÖRUR OG MARGT FLEIRA. FRÁBÆR VERÐ - E...
KAUPI GULL
kaupi gull! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmí...
SPÁNN - Gullna ströndin Costa Brava
Costa Brava - Pladja de Aro er frábær sólarstranda staður. Við leigum út íbúð st...
 
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...