70 konum og 3 körlum verður sagt upp

Jón Gnarr borgarstjóri tók í gær við undirskriftunum frá foreldrum …
Jón Gnarr borgarstjóri tók í gær við undirskriftunum frá foreldrum sem mótmæla tillögunum. mbl.is/Árni Sæberg

Tillögur um sameiningu leik- og grunnskóla í Reykjavík hafa í för með sér að 60 leikskólastjórnendur og 13 grunnskólastjórnendur fá uppsagnarbréf, þar af eru 70 konur og 3 karlar.

Þetta kemur fram í umsögn Kennarasambandsins um sparnaðartillögurnar, en sambandið leggur til að tillögurnar verði dregnar til baka. Sambandið segir að þessar aðgerðir gangi þvert á mannréttindastefnu borgarinnar og svokallaða kynjaða fjárhagsáætlunargerð. Sambandið segir að fjárhagslegur og rekstrarlegur ávinningur sé lítill miðað við heildarrekstrartekjur Reykjavíkurborgar.

„Rökstuðningur fyrir faglegum ávinningi í skýrslunni virðist vera lítið ígrundaður og hægt að hrekja hann í mörgum tilvikum með jafngildum faglegum rökum. Fram hefur komið að stjórnendur, kennarar, starfsmenn og foreldrar eru ósáttir við þessar tillögur og hafa þær þegar skapað mikla óvissu og óróa í skólastarfi þeirra stofnanna sem sameina á. Stöðugleiki og öryggi er lykilforsenda fyrir góðu skólastarfi. Þvingaðar sameiningar munu ekki hafa faglega skólaþróun í för með sér heldur þvert á móti andstöðu og erfiðleika sem erfitt verður að vinna úr og taka mun langan tíma,“ segir í umsögn aðildarfélaga KÍ.

Umsögn Kennarasambandsins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka