Hörð skrif gegn borgarstjóra
Jón Gnarr, borgarstjóri, sagði í umræðum á fundi borgarstjórnar í dag, að hann hefði alist upp við það að Morgunblaðið væri málgagn Sjálfstæðisflokksins eins og Þjóðviljinn hefði verið málgagn vinstri manna. Bæði blöðin hefðu verið keypt heima hjá honum.
Jón sagði fyrr í umræðunni, að í vinnuferlinu varðandi tillögur um sameiningu grunnskóla og leikskóla hafi verið unnin ákveðin pólitísk skemmdarverk og pólitísk öfl hefðu nýtt sér skipulagshæfileika sína og fjölmiðlatengsl til að ala á tortryggni og sá ótta. Borgarfulltrúar minnihlutans gagnrýndu Jón harðlega fyrir þessi ummæli og sögðu að harðasta gagnrýnin á tillögurnar hefði komið frá fulltrúum skóla og foreldra.
Jón sagði einnig í umræðunni að hann væri maður til að tala fyrir sig sjálfur og þurfi ekki að tala í gegnum Davíð Oddsson og Agnesi Bragadóttur. Í síðari ræðu sinni sagði Jón, að Morgunblaðið hefði að undanförnu haldið uppi mjög hörðum skrifum og persónulegum svívirðingum um hann og þar hefði Agnes Bragadóttir, blaðamaður, farið fremst í flokki.
„Hvað eru þau skrif annað en ofbeldi og dónaskapur?" sagði Jón. Spurði hann hvers vegna hann ætti að vera annarrar skoðunar en þeirrar, að þessi skrif tengdust, beint eða óbeint, Sjálfstæðisflokknum.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, forseti borgarstjórnar, bað borgarstjóra að gæta orða sinna og sagði að samkvæmt samþykktum borgarstjórnar mætti ekki saka fólk um ofbeldi og annað, sem ekki hefur tækifæri til að svara fyrir sig.
„Lestu umsagnir foreldra, frekar en Morgunblaðið," sagði Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. „Hættu að lesa Morgunblaðið og láttu það ekki trufla þig þótt einhver sé að pota í þig eða teikna einhverjar myndir."
Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, gagnrýndi Jón harðlega eftir fyrri ræðu hans og sagði hana hafa verið einkar óviðeigandi og það færi borgarstjóra, sem talaði um ofbeldi og skítkast illa að tala um skotgrafir. Þá færi það borgarstjóra, sem héldi úti eigin sjónvarpsþætti, illa að tala um misnotkun borgarfulltrúa á fjölmiðlum.
Jón sagði í síðari ræðu sinni að Sóley hefði með þessum ummælum verið að verja Morgunblaðið en því mótmælti Sóley harðlega.
Bloggað um fréttina
-
Gunnar Waage Hitlersgreiðsla og samsæriskenningar -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Ég játa það ég er skíthrædd... -
Haraldur Haraldsson Hörð skrif gegn borgarstjóra/Er hann en í hlutverki Georgs Bjarnfreðssonar ... -
Guðrún María Óskarsdóttir. Hver er samstarfsflokkur Besta flokksins í borgarstjórn ? -
P.Valdimar Guðjónsson Gnarrinn kominn í skotgrafir. -
Ómar Geirsson Gnarrinn gerði byltingu, hún mistókst. -
Anna Sigríður Guðmundsdóttir Aðförin að Jóni Gnarr er ekkert annað en einelti af ...
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 5. apríl 2011, Innlent Pólitísk skemmdarverk
- Þriðjudagur, 19. apríl 2011, Innlent Húmorsleysi og neikvæðni
- Þriðjudagur, 19. apríl 2011, Innlent Sjálfstæðismenn gríðarlega svekktir
- Þriðjudagur, 19. október 2010, Innlent Útilokar ekki að Dagur verði borgarstjóri
- Þriðjudagur, 19. apríl 2011, Innlent Óskiljanlegt að ekki hafi verið fallið frá tillögum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































