Óveður á Holtavörðuheiði

Óveður í Reykjavíkurhöfn. Myndin er úr myndasafni.
Óveður í Reykjavíkurhöfn. Myndin er úr myndasafni. Árni Sæberg

Óveður er á Holtavörðuheiði og versnandi veður. Á Suður- og Vesturlandi eru vegir greiðfærir. Vegna bilunar í símkerfi skilar veðurskilti á Kjalarnesi ekki réttum upplýsingum.

Á Vestfjörðum eru vegir greiðfærir fyrir utan hálkubletti á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði. Greiðfært er á Norðurlandi. Á Austurlandi eru hálkublettir á Öxi en annars greiðfært. Á Suðausturlandi eru vegir greiðfærir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert