Ómakleg yfirlýsing forsetans

Samtök atvinnulífsins segja ómaklega þá yfirlýsingu forseta Íslands, á blaðamannafundi í gær að forustumenn í samtökum íslensks atvinnulífs eigi að hætta að tala niður íslenskt atvinnulíf.

„Gagnrýni forseta Íslands á forsvarsmenn í íslensku atvinnulífi er ómakleg. Samtök atvinnulífsins hafa undanfarin ár reynt að skapa trúverðugar væntingar svo fjárfestingar sem nú eru í algjöru lágmarki verði meiri. Samtökin og aðildarsamtök þeirra hafa í ræðu, riti og á vefjum sínum birt fjölmörg dæmi um jákvæða þróun í einstökum fyrirtækjum," segir í yfirlýsingu á vef Samtaka atvinnulífsins.

Þá segir, að SA hafi lagt fram margvíslegar tillögur um hvernig unnt sé að komast út úr kreppunni. Við gerð kjarasamninga á þessu ári hafi verið lögð áhersla á að fara svonfenda atvinnuleið og mikilvægi þess að auka framboð vinnu í þjóðfélaginu.

„Samtök atvinnulífsins munu í framhaldi af orðum forseta Íslands senda embættinu ofangreind rit ásamt ýmsum upplýsingum öðrum sem gott væri fyrir forseta að kynna sér áður en hann næst gefur yfirlýsingar um málflutning SA," segir á vef samtakanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert