Árni Þór víkur
Árni Þór Sigurðsson situr á milli Björns Vals Gíslasonar og og Steingríms J. Sigfússonar. mbl.is/Kristinn
Árni Þór Sigurðsson hefur ákveðið að víkja úr starfi þingflokksformanns Vinstri grænna. Hann tilkynnti þetta á fundi þingflokksins í dag og vék síðan af honum. Þingflokkurinn fundar enn. Ekki liggur fyrir hver muni taka við embætti formanns.
„Ég gerði grein fyrir þessari yfirlýsingu minni á þingflokksfundi og vék svo bara af fundinum, og vildi að þingflokkurinn gæti þá rætt framhaldið án mín. Þannig að hann situr ennþá á fundi. Ég veit ekki hver lendingin verður í því máli,“ segir Árni Þór í samtali við mbl.is.
Árni Þór var á sunnudag kjörinn þingflokksformaður í stað Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur. Hún var í fæðingarorlofi og Árni Þór gegndi formennskunni á meðan.
Í yfirlýsingu sem Árni Þór hefur sent frá sér, segir að honum þyki miður að þetta mál hafi að ósekju verið persónugert og tengt bæði kvenfrelsisstefnu flokksins og lögum um fæðingarorlof. Sú umræða sé skaðleg flokknum og þar með óviðunandi.
„Það hefur aldrei hvarflað að mér að vera í einhverju embætti bara embættisins vegna. Þannig að ég ákvað að gera þetta og lít svo á að það sé lóð af minni hálfu á vogarskál einhverra sátta í málinu innan þingflokksins. Og vona að aðrir taki í þá hönd,“ segir Árni Þór í samtali við mbl.is.
Aðspurður gerði hann formanni og varaformanni VG grein frá ákvörðun sinni í gær.
|
|
Yfirlýsing Árna Þórs |
Bloggað um fréttina
-
Páll Vilhjálmsson Vinstri grænir í minnihlutastjórn -
Axel Jóhann Hallgrímsson Samsæriskenningar, koma svo -
Ásdís Sigurðardóttir Eins og ég sagði nýlega, þá sjá þeir alveg um ... -
Haraldur Haraldsson Árni Þór víkur/allt gert til að líma saman þessa ríkisstjórn,en ... -
Sigurður Jónsson Skrípaleikur Vinstri grænna slær sín fyrri met. -
Einar Guðjónsson Kona stjórnarformaður í VG- banka. -
Viggó Jörgensson Vinstri Grænir eru trúfélag utan um Steingrím. -
Gunnar Heiðarsson Hrossakaup !! -
Tryggvi Þórarinsson Enn ein ringulreiðin, og þetta lið situr í stjórn landsins. -
Emil Örn Kristjánsson Þvílíkur vandræðagangur...
Innlent »
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 10. apríl 2011, Innlent Guðfríður Lilja sett af
- Mánudagur, 11. apríl 2011, Innlent Ekki brot á fæðingaorlofslögum
- Miðvikudagur, 5. janúar 2011, Innlent Segir þingflokk VG styðja stjórnina
- Miðvikudagur, 1. september 2010, Innlent Fundir boðaðir í fyrramálið
- Sunnudagur, 10. apríl 2011, Innlent Bað um að kosningu yrði frestað
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































