Khat ekki notað hér
Ekki er vitað til þess, að nokkur eftirspurn sé eftir fíkniefninu khat hér á landi en fram kom í gær að lögregla lagði hald á um 60 kíló af þessu efni sem átti að senda héðan áfram til Bandaríkjanna og Kanada.
Fíkniefnið khat er afurð plöntu frá Norðaustur-Afríku og hefur verið
þekkt á Norðurlöndum síðustu áratugi. Lauf plöntunnar eru venjulega
tuggin eða búið til seyði úr þeim og það drukkið eins og te. Neyslan
hefur örvandi áhrif á fólk og eru áhrifin sögð svipuð vægum áhrifum af amfetamíni.
Khatplantan þarf að komast til neytanda innan fimm til sex daga til þess að halda styrk sínum, að sögn Karls Steinars Valssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns.
„Það hefur verið ansi mikil aukning á haldlagningum á þessari plöntu á Norðurlöndunum á síðustu árum þar sem yfirvöld hafa verið að leggja hald á þetta í tonnavís. En það eru tvö lönd í Evrópu sem hafa þetta ekki á bannlista og það eru Bretland og Holland. Það virðast í flestum tilvikum hafa verið dreifingarstaðirnir til annarra landa þannig að þessi sýn sem við erum að sjá í dag, þ.e.a.s. að þetta sé sent frá Íslandi, er svolítið ný,“ segir Karl Steinar.
Fjórir karlmenn voru handteknir í Reykjavík vegna málsins í vikunni. Þeir hafa allir komið áður til Íslands. Þrír þeirra eru frá
Bretlandseyjum en sá fjórði frá Hollandi. Tveir þeirra eru upprunnir í
Sómalíu, en Sómalía er einn helsti útflytjandi eiturlyfsins í heiminum.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 18. maí 2011, Innlent Khat afurð afrískrar plöntu
- Miðvikudagur, 18. maí 2011, Innlent 60 kíló af fíkniefnum
- Föstudagur, 10. júní 2011, Innlent Dæmdir fyrir að smygla khat
- Mánudagur, 29. ágúst 2011, Innlent Smyglaði 17 kílóum af khat
- Miðvikudagur, 18. ágúst 2010, Innlent Hald lagt á fíkniefnið Khat í fyrsta sinn
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































