Tvær nýjar hraðamyndavélar

Tvær hraðamyndavélar verða um mánaðamótin teknar í notkun á Hringvegi á Kjalarnesi við Árvelli.

Vegagerðin segir, að uppsetning vélanna sé liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og sé tilgangurinn sá að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðarslysum. 

Vegagerðin, innanríkisráðuneytið, ríkislögreglustjóri og Umferðarstofa vinna að uppsetningu hraðamyndavélanna.

Um er að ræða stafræna myndatöku þar sem upplýsingar um hraðabrot eru sendar samstundis til lögreglunnar. Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka