Forseti sitji aðeins þrjú kjörtímabil

Bessastaðir. stækka

Bessastaðir. mbl.is/Ómar

B-nefnd Stjórnlagaráðs leggur til að setutími forseta Íslands verði takmarkaður við þrjú kjörtímabil. Ekki hefur enn verið tekin afstaða til málskotsréttar forseta, hvort hann haldi heimild sinni eður ei og þá með hvaða hætti, að því er fram kemur í tilkynningu.

Þetta er á meðal þeirra tillagna sem nefndir Stjórnlagaráðs munu leggja fram á fundi sínum í dag, sem hófst kl. 10. Auk tillagna um forseta Íslands verða lagðar fram tillögur um utanríkis- og trúmál.

Starfstíminn framlengdur um einn mánuð

Fram kemur í tilkynningu að forsætisnefnd Alþingis hafi fallist á erindi Stjórnlagaráðs í vikunni um að starfstími ráðsins verði framlengur um mánuð. Stjórnlagaráð hefur samkvæmt þessu tíma þar til í lok júlí til að skila frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.

Segir að framlenging á starfstíma ráðsins sé í samræmi við þingsályktun um skipun Stjórnlagaráðs.

„A-nefnd leggur fram til kynningar tillögur sínar að greinum um trúfrelsi og jafnræði trúfélaga. Tillögurnar skiptast í tvo hluta; annars vegar ítarlegt trúfrelsisákvæði, þar sem er m.a. lagt til að hið opinbera verndi öll skráð trú- og lífsskoðunarfélög. Hins vegar leggur nefndin til einfaldað þjóðkirkjuákvæði, sem lagt verði í dóm þjóðarinnar á sama tíma og atkvæði verða greidd um tillögur Stjórnlagaráðs í heild sinni. Þannig muni þjóðin sjálf kveða úr um það hvort ákvæði um þjóðkirkjuna eigi að standa í stjórnarskránni eða ekki.

B-nefnd Stjórnlagaráðs kynnir tillögur um forseta Íslands. Þar kemur fram að mikilvægt sé að lýsa í stjórnarskránni með skýrum orðum ábyrgð og völdum hvers fyrir sig eins og þau eru í raun og veru þannig að stjórnarskrá sé gegnsæ og skiljanleg. Einhugur er í nefnd B um að forsetinn hafi menningarlegt hlutverk og sé verndari ýmissa gilda. Í samræmi við framangreint miða tillögur B-nefndar við að ,,lepporðalag” um hlutverk ráðherra og forseta sé afnumið en af því leiðir að ekki verði talað um að forseti framkvæmi tiltekna stjórnarathöfn þegar það sé í reynd ráðherra sem það geri og beri lagalega og pólitíska ábyrgð á athöfninni. Því er m.a. lagt til að 13., 18. og 19. gr. núverandi stjórnarskrár, séu felldar brott ásamt öðrum ákvæðum. Þá eru lagðar til breytingar á forsetakjöri og meðmælendafjölda, þannig að forseti verði kosinn með hreinum meirihluta. Þá er setutími hans jafnframt takmarkaður við þrjú kjörtímabil. Ekki hefur enn verið tekin afstaða til málskotsréttar forseta, hvort hann haldi heimild sinni eður ei og þá með hvaða hætti. Þá leggur nefndin fram tillögur til afgreiðslu inn í áfangaskjal um störf Alþingis sem kynntar voru í síðustu viku þar sem m.a. kveðið er á um takmörkun á setutíma ráðherra, að Alþingi kjósi forsætisráðherra sem ákveði síðan skipan ráðuneyta og tölu ráðherra og að leggja megi fram á Alþingi tillögu um vantraust á forsætisráðherra eða aðra ráðherra.

C-nefnd leggur til að settur verði sérstakur kafli um utanríkismál í stjórnarskrá í þremur greinum, um meðferð utanríkismála, um samninga við önnur ríki og um framsal ríkisvalds.Í tillögum C-nefndar kemur fram að það sé ráðherra en ekki forseti Íslands sem fari með utanríkisstefnu og geri samninga við önnur ríki í umboði og undir eftirliti Alþingis eins og hefð er. Alþingi þurfi að samþykkja samninga sem fela í sér afsal eða kvaðir á landi, landhelgi eða breytingar á landslögum, eða eru mikilvægir af öðrum ástæðum. Aðkoma utanríkismálanefndar er jafnframt tryggð varðandi mikilvæg utanríkismál og ákvarðanir. Lagt er til að heimilt verði að gera samninga sem fela í sér framsal á ríkisvaldi til alþjóðlegra stofnana sem Ísland á aðild að í þágu friðar og efnahagssamvinnu. Með því verði fylgt fordæmi nágrannaríkjanna og fest að hluta óskráð meginregla sem leidd hefur verið af 21. gr. stjórnarskrár. Slíkir samningar skulu bornir undir þjóðaratkvæði,“ segir í tilkynningu frá Stjórnlagaráði.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
58 fermetrar
Til leigu húsnæði á annari hæð í Dugguvogi 6 (Fossberg) Eitt rými með litlum el...
Hermannabuxur
Hermannabuxur til sölu. Upplýsingar í síma: 8935005...
Flugmiðar á frábæru verði til Alicante fram og tilbaka
Vegna forfalla eru til sölu flugmiðar fyrir fjóra til Alicante báðar leiðir. Br...
www.keyrsla.is Sendibílar
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Vörudreifing - fyrirtækjaflutningar. Öflug,G...
 
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...