Stjórnarmeirihlutinn í endalausum partíum
Stjórnarmeirihlutinn hefur ekkert vit á því hvernig staðan er í sjávarútvegi enda ekki ekki hægt að búast við því þar sem hann er bara í endalausum partíum í einhverjum karlaklúbbum, sagði Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi rétt í þessu.
„Ríkisstjórnin fer bara í silkibrækurnar sínar og tjúttar inni í einhverjum partíum og allt er þetta mál með þeim hætti, að það er eins og það sé einhver karlaklúbbur á blússandi fylleríi, sem skilar tillögum inn í Alþingi Íslendinga," sagði Árni.
Fór Árni afar hörðum orðum um frumvörpin og sagði þau rugl og kjaftæði og að yrðu þau að lögum myndu þau kippa rekstrargrundvellinum undan sjávarútvegsfyrirtækjum til að mynda í Vestmannaeyjum.
Sagði hann erfitt að ræða þessi mál í alvöru því endarnir væru allir trosnaðir og ekkert væri gert upp og spæst. „Svo á að setja í skoðun og umfjöllun og ferli og umræðupólitík. Hvað er þetta fólk að gera í pólitík? Það ætti að banna því að vera í pólitík, þetta eru hryðjuverkamenn, skemmdarverkamenn," sagði Árni og bætti strax við að hann tæki aftur hluta af þessu orði. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, sem sat í forsetastól, bað Árna að gæta orða sinna.
Kvartaði hann undan því að stjórnarþingmenn væru lítt viðstaddir umræðuna á þingi um kvótafrumvörpin og flýðu undan gagnrýni á frumvörp ríkisstjórnarinnar um breytingar í sjávarútvegi.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa ítrekað kvartað yfir því í dag að ráðherrar og stjórnarþingmenn væru ekki viðstaddir umræðuna í þinginu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vakti þannig t.a.m. athygli á að enginn þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs væri á mælendaskrá í dag um frumvörpin.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 31. maí 2011, Innlent Stoðunum kippt undan landsbyggðinni
- Þriðjudagur, 14. febrúar 2012, Innlent Óviðeigandi afskipti
- Mánudagur, 14. nóvember 2011, Innlent Samþykktu heimild til jarðakaupa
- Fimmtudagur, 29. mars 2012, Innlent Hafna ásökunum um málþóf
- Þriðjudagur, 22. maí 2012, Innlent Allt loft úr stjórnarandstöðunni
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































