11 sæmdir fálkaorðu

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi ellefu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu.

Þeir eru:

1. Dr. Andrés Arnalds fagmálastjóri Landgræðslu ríkisins, Mosfellsbæ, riddarakross fyrir störf á vettvangi landgræðslu og jarðvegsverndar
2. Hafdís Árnadóttir kennari og stofnandi Kramhússins, Reykjavík, riddarakross fyrir frumkvæði á sviði heilsueflingar og líkamsræktar
3. Hólmfríður Gísladóttir kennari, Reykjavík, riddarakross fyrir brautryðjandastörf í þágu flóttafólks og aðfluttra íbúa
4. Júlía Guðný Hreinsdóttir fagstjóri á Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íslensks táknmáls og réttindabaráttu
5. Kári Jónasson fyrrverandi fréttastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi fjölmiðla
6. Lovísa Christiansen framkvæmdastjóri Krýsuvíkursamtakanna, Hafnarfirði, riddarakross fyrir störf í þágu áfengis- og vímuefnaneytenda
7. Sjöfn Ingólfsdóttir fyrrverandi formaður Starfsmannafélags Reykjavíkur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til félagsmála og réttindabaráttu launafólks
8. Skúli Alexandersson fyrrverandi alþingismaður og oddviti, Hellissandi, riddarakross fyrir störf í þágu atvinnulífs, menningar og sögu heimabyggðar
9. Sverrir Bergmann Bergsson taugalæknir, Garðabæ, riddarakross fyrir störf í þágu MS-sjúklinga og á vettvangi heilbrigðismála og læknavísinda
10. Þorsteinn Vilhjálmsson prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til vísinda, kennslu og miðlunar fræðilegrar þekkingar til almennings
11. Þóra Einarsdóttir söngkona, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka