Útboði frestað til 2012

Drekasvæðið.
Drekasvæðið.

Ákveðið hefur verið að opnun á útboði sérleyfa á Drekasvæðinu verði frestað til 3. október n.k. Umsóknarfrestur verður til 2. apríl 2012.

Ástæða þessara breytinga á dagsetningum er að ekki náðist að ljúka við nauðsynlegar lagabreytingar varðandi skattlagningu kolvetnisvinnslu og leyfisveitingar á vorþingi fyrir sumarhlé Alþingis, en um nauðsynlegar lagabreytingar er að ræða til að útboðið geti hafist, að því er segir á vef iðnaðarráðuneytisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert