„Keisarinn er í engum fötum“

Pétur J. Eiríksson, einn aðstandenda vefsíðunnar Málsvörn.is.
Pétur J. Eiríksson, einn aðstandenda vefsíðunnar Málsvörn.is. mbl.is / Golli

„Við erum auðvitað bara mjög ánægð með þessa útkomu. Þetta sýnir einfaldlega að stórum meirihluta þjóðarinnar er misboðið,“ segir Pétur J. Eiríksson, einn af aðstandendum vefsíðunnar Málsvörn.is sem opnuð var á dögunum til stuðnings Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra, vegna ákæru á hendur honum fyrir Landsdómi.

Í dag voru birtar niðurstöður skoðanakönnunar MMR þar sem kom fram að 65,7% aðspurðra væru andvígir ákærunni á hendur Geir vegna framgöngu hans sem forsætisráðherra í aðdraganda bankahrunsins árið 2008. Þar af sögðust 48,3% vera mjög andvíg ákærunni.

„Maður er bara hissa á því að allir þeir lögfræðingar sem vinna að þessari ákæru, að enginn í þeirra röðum hafi áttað sig á því að keisarinn er í engum fötum og sagt hingað og ekki lengra. Eða þeir stjórnmálamenn sem greiddu atkvæði með þessu. Viðurkenna bara að þetta hafi verið rangt og mistök,“ segir Pétur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert