Framsókn eykur fylgið

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. mbl.is

Framsóknarflokkurinn fengi tæp 18% atkvæða ef kosið væri nú, samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup sem fréttastofa RÚV greindi frá í kvöld. Flokkurinn hefur bætt við sig tveimur prósentustigum og hefur hann ekki notið jafn mikil fylgis frá því í september 2009. 

Fylgi Samfylkingarinnar hefur minnkað um rúmlega eitt prósentustig og nýtur flokkurinn nærri 22% fylgis. Ríflega 35% kváðust styðja Sjálfstæðisflokkinn, og rúmlega 16% Vinstrihreyfinguna Grænt framboð. Hreyfingin var með um 3% fylgi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert