Byrjað að ferja bíla

Trukkurinn, sem notaður er til að flytja ferðamenn yfir Múlakvísl.
Trukkurinn, sem notaður er til að flytja ferðamenn yfir Múlakvísl. mbl.is/Eggert

Byrjað er að ferja bíla yfir Múlakvísl en björgunarsveitin Víkverji sér um að flytja bíla yfir ána fyrir bílaleigurnar. Fyrr í dag var byrjað að ferja ferðamenn yfir Múlakvíslina. Hafa flutningar, bæði á fólki og bílum, gengið vel.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni bíður nokkur fjöldi fólks eftir að komast yfir ána í rútur. Rúta og tveir trukkar eru fyrir austan til að ferja fólk og bíla yfir á vaði.

Útbúin hafa verið plön beggja vegna þar sem hægt er að aka bílum beint á vörubílspall.  Miðað er við að ferja yfir ána til að minnsta kosti 22:00 í kvöld og jafnvel til miðnættis,

Vörubílarnir geta tekið alla venjulega bíla. Fært er fyrir stærri fjórhjóladrifsbíla um Fjallabaksleið nyrðri, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Reynsla á eftir að koma á þennan ferðamáta en júlíumferðin á þessu svæði er um 1.000-1.200 bílar á sólarhring. Um 10 mínútur tekur að koma bíl fyrir vaðið þannig að ljóst er að ef umferð verður mikil gæti orðið töluverð bið á því að komast yfir Múlakvísl. Þó má búast við að hægt verði að anna um 25-35 prósent af venjubundinni umferð með þessum hætti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert