Aðstoðuðu ferðamann á hjóli

mbl.is/Ernir

Þrír félagar úr hjálparsveitinni Dalbjörg aðstoðuðu ferðalang á hjóli sem fastur var á hálendinu síðdegis í gær. Þetta kemur fram á vefsíðu Dalbjargar.

Ferðalangurinn, sem var Svisslendingur, hafði fest hjólið sitt í sandbleytu skammt sunnan við Urðarvötn og brotið af því kúplingshandfang.

Hjálparsveitarmenn losuðu hjólið og dunduðu sér við að steypa upp kúplingshandfangið með málmkýtti þannig að hjólið var ökufært á ný.

Ferðamanninum var síðan fylgt til baka inn á leiðina um Eyjafjarðardal.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert