Landsfundur VG í október

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs verður haldinn dagana 28.-30. október næstkomandi í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Boðað verður til landsfundarins skriflega til formanna svæðisfélaga í lok ágúst samkvæmt frétt á heimasíðu flokksins.

Fram kemur að skila þurfi inn tillögum að ályktunum til skrifstofu VG fyrir 16. september næstkomandi. Ennfremur að dagskrá, tillögur að ályktunum og lagabreytingar verði kynntar í byrjun október.

Frétt á heimasíðu VG

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert