Nýr slökkviliðsstjóri í Austur-Húnavatnssýslu

Frá Blönduósi.
Frá Blönduósi.

Hilmar Frímannsson hefur verið ráðinn slökkviliðsstjóri Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu en staðan var auglýst til umsóknar fyrir nokkrum vikum síðan. Hann var valinn úr hópi umsækjenda með aðstoð Capacent samkvæmt frétt Húnahornsins í dag.

Hilmar er þó ekki ókunnur brunavörnum í Austur-Húnavatnssýslu en hann gegndi áður stöðu aðstoðarslökkviliðsstjóra.

Frétt Húnahornsins

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert