Erill hjá lögreglu á Mærudögum

mbl.is/Hjörtur

Talsverður erill var í nótt hjá lögreglunni á Húsavík en Mærudagar fara fram á staðnum nú um helgina. Tveir gistu fangageymslur lögreglu vegna ölvunar og þá komu upp nokkur fíkniefnamál.

Lagt var hald á fíkniefni sem fundust á fólki í tveimur tilfellum og lögreglan hafði afskipti af fjórum ökumönnum sem grunaðir eru um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna.

Þá var tilkynnt um eina líkamsárás en ekki hefur verið tekin ákvörðun enn að sögn lögreglunnar hvort hún verður kærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert