Stöðvaður með fölsuð skilríki

Norræna við bryggju á Seyðisfirði.
Norræna við bryggju á Seyðisfirði. mbl.is

Lögreglan á Egilsstöðum stöðvaði karlmann sem kom með Norrænu til Seyðisfjarðar í gær. Reyndist hann vera með fölsuð skilríki en hann segist vera frá Palestínu og óski eftir hæli á Íslandi.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu verður hann í haldi á meðan mál hans er rannsakað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert